Við vorum að fá þennan tölvupóst, ef einhver á myndir og er til í að lána þær, þá endilega hafið samband við Sigríði Örnu.
góðan dag
ég er að leita að myndum af fólki að dansa í Breiðfirðingabúð á áratugnum 1940 til 1950 til að nota í sjónvarpsþætti sem fjallar um þennan áratug og hvernig það var að vera ungur á þessum tíma. Það er Reykjavik films sem gerir þessi þætti alls sex talsins og verða þeir sýndir á RUV um eða eftir áramót undir nafninu Unga Ísland. Okkur vantar sem sagt; Svart hvítar myndir af fólki að dansa í Breiðfirðingabúð eða að sitja til borðs og njóta góðra veitinga. Það væri vel þegið fyrir okkur að fá eins og 3 til 4 svona myndir. Og sem allra fyrst með fyrirfram þökk og kveðju.
Sigríður Arna. Reykjavik films s. 699-8121
Leave a Reply